Hegranes

 

,,Fyrir hópinn þinn”

Í Hegranesi höfum við nú tekið í notkun nýtt tjaldstæði með inniaðstöðu og er það eingöngu er ætlað hópum. Þannig getur hópurinn þinn verið með sitt einkatjaldstæði og nýtt sér aðstöðu í húsi fyrir sameiginlegt borðhald, til skemmtunar eða bara til vara ef veðurguðirnir bregðast.

 

Aðstaða

Húsið sem er um 270 fm, tekur um 110 manns í sæti (borð og stólar eru á staðanum). Í húsinu eru fjögur salerni, eldhús með uppþvottavél, ískáp, eldavél og kaffikönnu.

Í kringum húsið er stærðar lóð sem nýtist sem tjaldstæði fyrir hópinn og er rafmagnskassi til staðar fyrir þá sem vilja komast í slíkt.

Ath: sérstakt kynningarverð sumarið 2015